Hlustaði á Guðmund Andra lesa hana á hljóðbók. Ágætis saga en ofsalega gott að hún er ekki lengri. Maður hefði verið farinn að finna fyrir klostrófóbíu ef hún hefði til dæmis bara verið hálfnuð þegar henni var í raun að ljúka. Gaman samt að heyra Guðmund Andra kljást við það að búa til aldarfarslýsingu útlendings [...]
Entries from september 2004
21 september 2004
Veröld sem var eftir Stefan Zweig
Hlustaði á Gísla Halldórsson lesa hana á hljóðbók. Fantafín bók. Þrjár (jafnvel ***1/2) af fjórum mögulegum. Vel skrifaður aldarspegill og í aðdáunarverðri þýðingu Halldórs J. Jónssonar og Ingólfs Pálmasonar. Myndi mæla með þessari við alla þá sem ekki hafa þegar lesið hana. Einn svakalegast ef til vill að finna líkindin í lýsingum Zweigs á aðdraganda [...]
21 september 2004
Ég er ekki hræddur eftir Niccoló Ammaniti
Rígheldur alveg þessi saga, afskaplega vel skrifuð myndi ég segja. Alltaf samt jafnhættulegt að fara að ofhlaða bækur lofi við aðra því að þá fer viðkomandi að búast við einhverju stórfenglegu. Sumar senurnar í henni reyndar svo hryllilegar að maður þorir varla að fletta. En það er bara gæðamerki. Endirinn fannst mér að vísu dálítið [...]
21 september 2004
Vetrardrottningin eftir Boris Akúnín
Allt öðru vísi krimmi en maður hefur verið að lesa. Þetta er meira í ætt við James Bond en allan skandinavíska sósíalrealismann sem maður er vanur að vera á kafi í hjá Henning Mankell, Arnaldi og fleirum. Held ég kunni reyndar betur við sósíalrealismann eftir allt saman. Ágætis afþreying reyndar þessi Vetrardrottning en samt einhvern [...]
21 september 2004
My Invented Country eftir Isabellu Allende
Gef henni tvær og hálfa stjörnu, hugsa ég. Bara nokkuð skemmtileg bók að renna sér í gegnum. Lýsingar hennar á því hvað er ,,týpískt chileanskt” eru oft skemmtilegar og fróðlegar en ég er nú alltaf svo mikill svona stjórnmálafræðiperri að ég vil alltaf hafa sem mest um stjórnmál og þjóðmál í svona bókum og hef [...]
17 september 2004
Hundra och en dag eftir Åsne Seierstad
Nafn norsku blaðakonunnar Åsne Seierstad ætti að vera íslenskum lesendum í fersku minni eftir að þýðing á bók hennar um Bóksalann í Kabúl kom út hér á landi fyrir síðustu jól. Þar sagði frá dvöl höfundar meðal afganskrar fjölskyldu eftir fall talíbanastjórnarinnar þar í landi. Bókinni var hampað um heim allan, þýdd á fjölda tungumála [...]
16 september 2004
Hundabókin eftir Þorstein Guðmundsson
[Gagnrýni í samtalsformi sem birtist á Kistunni]
13.11.2002
frá: Úlfhildi Dagsdóttur til Sigurðar Ólafssonar
subject: Hundabókin, Þorsteinn Guðmundsson
Sæll Sigurður. Fyrir tveimur árum sendi Þorsteinn Guðmundsson leikari og fóstbróðir frá sér smásagnasafn sem gladdi okkur bókaverjur all mikið með trúverðugum lýsingum á okkar daglega amstri. Nú hefur drengurinn sent frá sér annað sagnasafn: er jafn mikla ánægju af því [...]
16 september 2004
Næturstaður eftir Sigurð Pálsson
[Gagnrýni í samtalsformi sem birtist á Kistunni]
Góðan daginn Sigurður. Nafni þinn Pálsson er best þekktur sem ljóðskáld, en hefur einnig starfað við leikhús og er menntaður í kvikmyndum. Fyrir nokkrum árum sneri hann sér svo að skáldsagnaskrifum og er Næturstaður hans þriðja skáldsaga. Og nú langar mig að vita hverskona saga þetta er, ber hún [...]
16 september 2004
Skrýtnastur er maður sjálfur eftir Auði Jónsdóttur
[Bókaumfjöllun í samtalsformi sem birtist á Kistunni á sínum tíma]
Úlfhildur Dagsdóttir ritaði:
Halló Sigurður, Laxness árið byrjaði með bravúr, en nú síðari partinn hefur verið fremur hljótt um þennan ágæta höfund. Þangað til bók Auðar Jónsdóttur birtist. Hverskonar bók er þetta og hvernig leist þér á hana?
bestu kveðjur
úlfhildur
30. nóv. 2002
Subject: Skrýtnastur er maður sjálfur
Sigurður Ólafsson ritaði:
Já, [...]
16 september 2004
Vaknað í Brussel eftir Betu
Það afreka ekki margar bækur það að hleypa af stað hatrömmum deilum áður en þær koma út. Það tókst nú samt bók Elísabetar Ólafsdóttur (Betu rokk), Vaknað í Brussel. Deiluefnið er gamalkunnt; sjónarmið markaðslögmálanna gegn hinum listrænu gildum. Bilið milli markaðarins og listarinnar eru hins vegar yfirleitt frekar illgreinanleg. Flestir þeir sem gera út á [...]
16 september 2004
Portnoys Complaint eftir Philip Roth
Sjálfsagt hafa fáir bandarískir rithöfundar hreyft meira við teprulegum löndum sínum en hinn aldni Philip Roth. Hann hefur verið iðinn við að hneyksla fólk allt frá því að hann sendi frá sér sína fyrstu bók Goodbye, Columbus 1959. Reyndar má segja að gagnrýnin þá hafi einkum komið úr hans eigin ranni. Gyðingar voru nefnilega margir [...]
16 september 2004
Uppgjör við umheiminn eftir Val Ingimundarson
Það er allt of fátítt að út komi bækur þar sem kafað er ofan í einstaka þætti íslenskrar stjórnmálasögu síðari ára út frá fræðilegu sjónarmiði. Það fáa sem fram kemur af þessu fræðilega efni er því eðlilega afar kærkomið.
Það á til dæmis við um rannsóknir Vals Ingimundarsonar sagnfræðings sem komu út í tveimur ritum 1996 [...]
16 september 2004
Pinochet in Piccadilly eftir Andy Beckett
Þeir voru ófáir sem glöddust innilega þegar fréttir bárust af því í október 1998 að Augusto Pinochet, alræmdur fyrrum einræðisherra í Chile, hefði verið handtekinn í London og ætti yfir höfði sér ákæru fyrir glæpi gegn mannkyni. Draumurinn um að Baltasar Garcon, spænski dómarinn og hugsjónamaðurinn, fengi að segja herforingjanum ósvífna til syndanna virtist innan [...]
16 september 2004
Bóksalinn frá Kabúl eftir Åsne Seierstad
Það kom Åsne Seierstad öllum hinum vestrænu blaðamönnunum í Afganistan skemmtilega á óvart að finna vel búna bókabúð í menningarauðninni Kabúl þar sem talíbanar höfðu annars náð að dauðhreinsa burt alla framför mannkyns síðastliðin 1500 ár eða svo, og jafnvel lengra aftur.
Vertinn í búðinni vissi líka sínu viti, gat spjallað um heimsbókmenntirnar við kúnnana af [...]