Entries from maí 2005

30 maí 2005

Gangandi íkorni eftir Gyrði Elíasson

Það er nú alveg nauðsynlegt fyrir merkikerti með upprennandi mastersgráðu að geta svarað með spekingslegu já-i þegar maður er spurðu hvort maður hafi ekki lesið Gyrði. Svo segir maður ekki meir, t.d. ekki það að maður hafi bara lesið eina bók eftir hann – og hana mjög stutta.
Ég er sem sagt búinn með nóvelluna Gangandi [...]

21 maí 2005

The Curious Incident of the Dog in the Night-Time eftir Mark Haddon

Það er alltaf sama sagan þegar maður tekur sér í hendur bók sem allir eru búnir að lesa og allir hafa mært upp til skýjanna: Maður verður svolítið hræddur um að verða sjálfur fyrir vonbrigðum. Þannig var það með bókina sem ber hið ógnarlanga nafn The Curious Incident of the Dog in the Night-Time (sem [...]

17 maí 2005

Två nötcreme och en moviebox eftir Filip Hammar og Fredrik Wikingsson

Tveir strákar setjast niður og ákveða að skrásetja það sem einkenndi æsku þeirra sem ólust upp á níunda áratugnum og voru unglingar í upphafi þess tíunda. Gæti verið skemmtilegt, segir nostalgískur maður á þrítugsaldri við sjálfan sig sem minnist einmitt uppvaxtar á sama tíma. Hefst svo lesturinn:
Þeir Filip og Fredrik segja frá uppvexti sínum og [...]

14 maí 2005

Hugsjónadruslan eftir Eirík Örn Norðdahl

Hvað skal segja um Hugsjónadrusluna hans Eiríks? Það er alltaf dálítið pínlegt að tjá sig um verk fólks sem maður þekkir dálítið, sérstaklega ef maður ætlar sér að reyna að segja eins og er í stað þess að smjaðra bara. Þá er alla vega gott að hafa fyrir framan sig bók sem virkilega er fín [...]