Entries from ágúst 2005

27 ágúst 2005

The New York Trilogy eftir Paul Auster

Paul Auster var einn af þessum höfundum sem vinir mínir sem lögðu stund á bókmenntafræði lágu gjarnan yfir. Allt upp frá því vakti það forvitni mína að komast að því hvað byggi í þessum greinilega geysimerkilega Auster sem allir vildu kveðið hafa. Fyrst svalaði ég reyndar forvitninni fyrir svo sem eins og þremur-fjórum árum síðan [...]

10 ágúst 2005

Chronicles: Volume One eftir Bob Dylan

Hvað er svalara en Sean Penn að lesa endurminningar Bob Dylans? Ýmislegt, svosum – en ansi svalt er það nú samt sem áður. Undanfarið hef ég einmitt verið að hlýða á Sean lesa upp fyrsta bindi Krónika Bob Dylans sem komu út í bókarformi síðasta haust.
Ég minnist þess að hafa í upphafi verið tortrygginn á [...]

8 ágúst 2005

Fotbollskriget eftir Ryszard Kapuściński

Fótboltastríðið er titill á einu greinasafna pólska blaðamannsins Ryszard Kapuściński sem upphaflega kom út á frummálinu 1988 þegar höfundurinn hafði fyrir nokkru skipað sér í flokk frægustu og virtustu stríðsfréttablaðamanna heimsins. Titillinn vísar í hið skammvinna stríð sem braust út milli Hondúras og El Salvador 1969 þar sem knattspyrnuleik milli þjóðanna var kennt um að [...]

8 ágúst 2005

Íslenski draumurinn eftir Guðmund Andra Thorsson

Guðmundur Andri kláraði fyrir nokkrum dögum að lesa fyrir mig Íslenska drauminn sinn meðan að ég arkaði um miðbæinn, aðallega í og úr vinnu. Í fyrstu var ég aðallega gripinn sömu tilfinningu og þegar að ég gerði áhlaup á Náðarkraft hans sem kom út fyrir þarsíðustu jól: einhvers konar óþol var það líkast til. Það [...]