Entries from nóvember 2005

28 nóvember 2005

Pyramiden eftir Henning Mankell

Kláraði enn eina Mankell-bókina um Wallander í gær. Áður hef ég lýst því fjálglega hversu hundleiður ég er orðinn á Mankell og hans flötu og eintóna frásögnum um Kurt Wallander og félaga hans í Ystad-lögreglunni sérstaklega þegar að maður gæti verið að lesa eitthvað litríkara og betra í staðinn. En nú hef ég fundið hina [...]

22 nóvember 2005

Längst därnere eftir Günter Wallraff

Sjálfsagt eru fáir leiðangrar í rannsóknarblaðamennsku frægari en sá sem þýski blaðamaðurinn Günter Wallraff hélt í árin 1983-1985 þegar að hann dulbjó sig sem tyrkneskan verkamann og kynntist því lífi og þeim kjörum sem hið svokallaða gestaverkafólk (Gästarbeiter) bjó við í Þýskalandi. Afrakstur úttektarinnar varð frægur um allan heim í bók Wallraffs, Ganz unten (Niðurlægingin [...]

14 nóvember 2005

Until Death Do Us Apart eftir Ingrid Betancourt

Ýmsar alls konar alþjóðamælingar um spillingu í stjórnmálum hér og þar sýna ævinlega fram á það að Ísland sé meðal minnst spilltu ríkja heims. Þó þykir nú flestum nóg um samt og þurfa þá ekki annað en að líta til allra bankastjóraráðninga, bankasala, byggðastyrkja og svo mætti áfram telja. Þeir flestu sem óar yfir hinni [...]

2 nóvember 2005

Imperium eftir Ryszard Kapuściński

Sjálfsagt er fátt jafnt spennandi fyrir sagnfræðinga samtímans sem rannsóknarefni og Sovétríkin – heilt heimsveldi sem að miklu leyti var lokuð bók fyrir umheiminum allt þar til skjalasöfnin voru opnuð upp á nýtt og málfrelsi komst á að nýju eftir fall kommúnismans. Sagnfræðingar hafa heldur ekki látið sitt eftir liggja og allt frá endalokum Sovétríkjanna [...]