Entries from maí 2006

25 maí 2006

Draumalandið eftir Andra Snæ Magnason

Það skal viðurkennast hér og nú að ég hef lengst af staðið á hliðarlínunni eða sveiflast á milli staðfastra sjónarmiða andstæðra fylkinga í málefnum virkjana á Austurlandi. Heldur þó verið á bandi umhverfissinna en þó verður að segjast að maður hefur ekki verið alls ósnortinn af málstað Austfirðinga sem vilja fá atvinnu og búsetugrundvöll heim [...]

24 maí 2006

Saturday eftir Ian McEwan

Ian McEwan er að verða einn af mínum uppáhaldshöfundum, þrátt fyrir að ég sé nú einungis nýbúinn að ljúka annarri bókinni minni eftir hann. Sjálfsagt felst aðdáunin að miklu leyti í þeim heljartökum sem McEwan hefur á stíl og framvindu sagna sinna en ég er samt sem áður á því að mest dáist ég að [...]

10 maí 2006

Homage to Catalonia eftir George Orwell

Það getur verið hættulegt að kaupa gagnrýnislaust hina alteknu söguskoðun sigurvegaranna. Í tilviki spænsku borgarastyrjaldarinnar voru það að vísu ekki sigurvegarar styrjaldarinnar sjálfrar sem hlutu góðu eftirmælin en þeir sigurvegarar voru hins vegar hluti af flokki fasískra alræðisafla sem nokkru síðar hlutu sín eilífu og verðskulduðu slæmu eftirmæli.
Í tilviki spænsku borgarastyrjaldarinnar eru það hin svokölluðu [...]

5 maí 2006

The File eftir Timothy Garton Ash

Timothy Garton Ash had a rare opportunity to review his youth. Adding to his diaries as sources of himself as a young man, there existed an outsider’s view also – the view of a secret-police in an autocracy, even more detailed about himself at many points than his own remarks on his experiences at the [...]

5 maí 2006

Italien eftir Tomas Lappalainen

Viðeigandi að renna í gegnum eina bók um Ítalíu meðan á Ítalíudvöl stendur. Ég kippti með mér bók eftir Svíann Tomas Lappalainen og reyndist hún vera hin fróðlegasta og ánægjulegasta lesning. Bókin er ekki ferðabók heldur beinir hún sjónum sínum að ítölsku þjóðfélagi og rótum þess.
Það sem mest kom á óvart við lestur þessarar bókar [...]