Entries from júlí 2006

30 júlí 2006

Stormur eftir Einar Kárason

Aftan á kiljuútgáfunni af Stormi eftir Einar Kárason sem ég fékk lánaða um daginn er vitnað í ritdómara sem segir eitthvað á þá leið að það sé langt síðan hann skemmti sér jafnmikið við lestur bókar. Ég segi nú eiginlega það sama bara. Maður er alltaf að lesa bækur sem hafa það helst upp á [...]

25 júlí 2006

Steget efter eftir Henning Mankell

Ég var farinn að fá hundleið á þessum Mankell-bókum, og glæpasögum yfirleitt, þegar ég ákvað þó að prófa að hlusta á þessa. Hún er númer sex eða sjö af Wallander-sögunum og mér til undrunar og mikillar gleði þá var hún mun betri en margar af þeim sem ég hef lesið. Eins og ég hef áður [...]

15 júlí 2006

Sólskinshestur eftir Steinunni Sigurðardóttur

Það er mikið fagnaðarefni að Edda-útgáfa (eða hvað þetta heitir nú formlega) skuli stíga það skref inn í nútímann, fyrst íslenskra forlaga, og fara að fordæmi erlendra kollega sinna með því að hefja útgáfu svokallaðra MP3-bóka – þ.e. hljóðbóka á MP3-formi sem fólk getur hlaðið beint inn á spilarana sína til þess að hlýða svo [...]

15 júlí 2006

På resa med Herodotos eftir Ryszard Kapuscinski

Ekki var hægt að láta hjá líða að renna í gegnum þessa nýjustu bók Ryszards Kapuscinski sem er tiltöluleg nýkomin út í sænskri þýðingu (enska þýðingin bíður útkomu síðar á þessu ári). Það kveður við nokkuð nýjan tón í þessari bók Kapuscinski enda má segja að sögumenn þessarar bókar séu tveir; Kapuscinski og svo forn-gríski [...]

12 júlí 2006

When we were Orphans eftir Kazuo Ishiguro

Það eru auðvitað bölvaðir fordómar og alhæfingar af minni hálfu sem valda því að mér finnst að nafn Kazuo Ishiguro ætti að vera tengt hinni nýju bylgju enskra bókmennta þar sem tónn innflytjenda og afkomenda þeirra í bresku samfélagi er áberandi. Það kemur nefnilega mjög snemma í ljós við hlustun á skáldsögu hans When we [...]

7 júlí 2006

Vindens skugga eftir Caros Ruiz Zafon

Ég spyr mig sömu spurningar eftir hlustun á Skugga vindsins og ég gerði þegar að ég þrælaði mér í gegnum hlustun á fyrstu Harry Potter-bókunum tveimur: Hvað í ósköpunum finnst öllum svona merkilegt við þessa lélegu skruddu?!
Skuggi vindsins á það sameiginlegt með Harry Potter að í báðum tilvikum er um að ræða marflatar og klisjukenndar [...]

6 júlí 2006

Jónsbók eftir Einar Kárason

Ég kom sjálfum mér mikið á óvart með því að sækjast eftir að lesa þessa bók meðan á Íslandsdvölinni stóð og enn meira kom ég sjálfum mér á óvart að ég skyldi halda þennan 500 blaðsíðna doðrant út.
Vart þarf að kynna athafnamanninn Jón Ólafsson fyrir Íslendingum. Eitthvað varð til þess að ég var spenntur fyrir [...]

5 júlí 2006

Vetrarborgin eftir Arnald Indriðason

Ein af þeim lestrarhefðum sem ég held hvað fastast í er að renna mér árlega í gegnum nýjasta krimmann hans Arnaldar Indriðasonar. Ég kvikaði ekki frá þeirri reglu minni nú meðan á Íslandsdvölinni stóð í júní og varð mér út um Vetrarborgina frá því úr síðasta jólabókaflóði.
Skemmst frá að segja er Vetrarborgin í flokki slappari [...]

5 júlí 2006

Brott och straff eftir Fjodor Dostojevskíj

Það fór aldrei svo að maður renndi sér ekki í gegnum eins og eitt stykki af verkum Dostojevskíjs. Hljóðbók var það að vísu en heilir 22 diskar voru það og í þessum líka fantafína sænska lestri. Það skiptir nefnilega miklu máli að upplesturinn sé góður, þannig er það ekki alltaf en þannig var það svo [...]