Entries from nóvember 2006

20 nóvember 2006

Goodbye to Berlin eftir Christopher Isherwood

Þrælfín bók í góðum upplestri. Dregur upp mynd af suðupottinum Berlín á árunum í kringum 1930 þegar að allt gat enn gerst í þeirri miklu heimsborg og raunar í Þýskalandi öllu. Það er engin leið að sjá hverjir muni hafa best, kommúnistar, nasistar eða bara sama gamla Weimar-sósjaldemókrasían (Þjóðverjar hefðu betur haldið sig bara við [...]

12 nóvember 2006

Lygasaga eftir Lindu Vilhjálmsdóttur

Fátt finnst mér nú leiðinlegra en fyrrverandi alkar að rekja í löngu máli fyrrum drykkjusögu sína í allt of miklum smáatriðum. Fyrir vikið hef ég í gegnum tíðina forðast allar reynslusögur sem komið hafa út á bók þar sem að þurrkaðir alkar segja frá blautri fortíð sinni. Flokka þetta undir einhvers konar sorgar- eða óhamingjuklám [...]

8 nóvember 2006

Khader.dk eftir Naser Khader

Sjálfsævisaga en um leið pólitískt testamenti þessarar einnar helstu vonarstjörnu danskra stjórnmála í dag. Khader situr á þingi fyrir Radikale venstre-flokkinn, er sýrlenskur að uppruna en hefur búið hér frá barnsaldri.
Sagan segir sögu hans sem innflytjanda og í leiðinni kemur hann á framfæri sínum skoðunum um danska pólitík, einkum innflytjendamál.
Athyglisverð bók um margt þó að [...]

8 nóvember 2006

Imperial Ambitions eftir David Barsamian og Noam Chomsky

Viðtalsbók útvarpsmannsins Barsamians við Chomsky þar sem farið er um víðan völl og tæpt á hinu og þessu. Í heildina nokkuð skemmtileg lesning þar sem að Chomsky sýnir, eins og búast mátti við, nokkuð aðra hlið á hinu góða heimsveldi Bandaríkjanna. Margt athyglisvert kemur fram, t.d. hvernig USA, hylmir yfir hryðjuverkamenn og er þar með, [...]