Af því sem ég hef lesið eftir Murakami þá held ég að mér hafi þótt þetta það sísta. Kannski er það vegna þess að ég hef aldrei almennilega lært að meta smásögur, ég veit ekki. Sumt var reyndar þrælgott þarna og allt raunar að minnsta kosti ágætt en ég er meira fyrir skáldsögurnar hans.
Nokkrir upplesarar [...]
Entries from desember 2006
22 desember 2006
The Elephant Vanishes eftir Haruki Murakami
14 desember 2006
Útgönguleiðir eftir Steinar Braga
Sigurður Pálsson sagði í útvarpsviðtali sem ég heyrði um daginn að lestur bóka væri á vissan hátt eins og spilun á gömlum vínilplötum. Spennusögur lesi maður á 78 snúninga hraða, skáldsögur á 45 snúningum og ljóð loks á 33 snúninga hraða. Séu ljóð lesin á meiri hraða en þetta þá fari upplifunin fyrir lítið. Mér [...]
13 desember 2006
Metamorphosis eftir Franz Kafka
Nú er ég orðinn töluvert meira merkikerti og get slegið aðeins meira um mig eftir að vera búinn að komast í gegnum fyrstu Kafka-bókina mína. Hamskiptin voru það heillin. Þetta var það fyrsta sem ég valdi mér að hlusta á eftir að ég uppgötvaði aðgang minn, sem lánþegi á Malmö-bókasafninu, að Naxos-hljóðbókararkívinu.
Upplesturinn var góður og [...]
5 desember 2006
Travels with Charley eftir John Steinbeck
Þessa dagana er talsvert mikið rætt um nýútkomna ferðasögu þeirra Einars Kárasonar, Ólafs Gunnarssonar og fylgineytis um reisu þeirra síðastliðið sumar þvert yfir Bandaríkin á gömlum Kadilakk. Ferðalangarnir fylgdu að talsverðu leyti hinum sögufræga „þjóðvegi 66“, þeim hinum sama og John Steinbeck átti stóran þátt í að gera ódauðlegan í skáldsögu sinni Þrúgum reiðinnar frá [...]