Entries from febrúar 2007

26 febrúar 2007

Sendiherrann eftir Braga Ólafsson

Alltaf bíð ég jafn spenntur eftir minn uppáhaldsrithöfund, Braga Ólafsson, og ekki minnkar nú spenningurinn við alla þá stjörnudóma sem Bragi er vanur að fá fyrir afurðir sínar hjá helstu bókmenntagáfumennum landsins.
Sumir sögðu um Sendiherrann, þessa nýjustu bók Braga, að hún væri hans besta. Ég er ekki frá því að ég taki næstum því undir [...]

22 febrúar 2007

Sonjas godhet eftir Owe Wikström

Önnur bókin sem ég hlusta á eftir þennan mæta mann. Fyrri bókin eftir hann gaf afar góða raun, var uppfull af skemmtilegum og athyglisverðum pælingum um ýmislegt afar heimspekilegt. Þessi bók er svipuð. Hér veltir Wikström helst fyrir sér náungakærleik og hvort hann eigi undir högg að sækja nú á tímum öfgafullrar einstaklingshyggju þar sem [...]

9 febrúar 2007

Góði dátinn Svejk eftir Jaroslav Hasek

Ef það er til eitthvað sem heiti klassík í íslenskum hljóðbókarupplestri þá veit ég ekki hvað ætti að komast ofar á blað en lestur Gísla Halldórssonar á Góða dátanum Svejk eftir Jaroslav Hasek. Ég er búinn að vera að hlusta á þessa frábæru sögu undanfarinn mánuðinn og skemmta mér alveg hreint konunglega yfir Gísla fara [...]