Brandvägg eftir Henning Mankell
Þessi Mankell-bók markaði þau merku tímamót að þar með er ég búinn að lesa eða hlusta á allar þessar Wallander-bækur. Fyrstu bækurnar las ég í íslenskri þýðingu enda kunni ég þá varla stakt orð í sænsku. Síðan tók við lestur á 2-3 á frummálinu og restina hef ég svo hlustað á í sænskum upplestri svona af og til síðustu tvö árin sirka. Um þessa Wallander-bók er svo sem lítið meira að segja en hinar, bara afskaplega hefðbundin í alla staði.
Þannig að nú þarf ég að finna mér eitthvað annað svona álíka létt og aðgengilegt til þess að stytta mér stundirnar við húsverkin.
** stjörnur