Arif, tyrkneskur skólafélagi minn, er yfirleitt afar hæglátur og broshýr ungur maður. Einhvern tíma þegar við stóðum á spjalli í einni pásunni milli tíma hnyklaði hann hins vegar brýnnar ógurlega. Ég færði nefnilega í tal landa hans, Nóbelsverðlaunahafann Orhan Pamuk. ,,Hann er svikari. Hann sveik landið sitt,” sagði Arif fremur byrstur og vildi greinilega snúa [...]