Sú bók sem sat efsta á metsölulistum í Danmörku á síðasta ári hét Hundehoved. Um er að ræða svokallaðan slægtsroman, þ.e.a.s. ættarsögu þar sem þremur kynslóðum innan sömu fjölskyldu er fylgt eftir, allt frá því fyrir heimstyrjöldina seinni og til nútímans. Nú hef ég nýlokið hlustun þessarar bókar í alveg hreint ágætum dönskum upplestri.