Ég held að ég hafi áður kvartað yfir því hér hversu skelfilegt það getur verið að ætla sér að láta bók standa undir væntingum sem hefur svo verið ausin lofi að maður hallast eiginlega helst að því að það hljóti barasta að vera eitthvað að manni sjálfum fyrst maður fattar ekki alla snilldina sem hinir [...]
Entries from janúar 2008
23 janúar 2008
Infidel eftir Ayaan Hirsi Ali
Það er ekki ofsögum sagt að lífshlaup Ayaan Hirsi Ali sé magnað. Í bókinni Infidel lýsir hún mögnuðu lífshlaupi sínu, flakki með fjölskyldu sinni frá einu landinu til annars (Sómalía, Kenýa, Saudi-Arabía o.fl.), hryllilegri meðferð sem hún þarf að sæta af sínum nánustu (eitt sinn var móðir hennar nærri búin að drepa hana eftir einar [...]
6 janúar 2008
Harðskafi eftir Arnald Indriðason
Það að lesa nýjustu Arnaldarbókina er orðin árviss viðburður hjá mér. Undanfarin ár hefur þetta oft verið frekar þunnur þrettándi og aldrei er þetta beinlínis nein snilld. En Harðskafi er, í stuttu máli, samt sjálfsagt besta bók Arnaldar í nokkuð mörg ár, kannski síðan hann sendi frá sér Röddina. Harðskafi er lágstemmd og yfirveguð, vel [...]
6 janúar 2008
Blótgælur eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur
Ýmsir kannast við það (meðal annars ég) að hafa aldrei verið uppteknari af því að vera fullorðinn en þegar maður er á mörkum unglingsskeiðsins og fullorðinsáranna. Þá upplfia ýmsir tímabil sem einkennist af miklum alvöruþrunga, húmorsleysi fyrir tilverunni, lestri á ljóðum sem maður skilur ekki, áhorfi á listrænar bíómyndir sem maður pínir sig til að [...]