Það að lesa nýjustu Arnaldarbókina er orðin árviss viðburður hjá mér. Undanfarin ár hefur þetta oft verið frekar þunnur þrettándi og aldrei er þetta beinlínis nein snilld. En Harðskafi er, í stuttu máli, samt sjálfsagt besta bók Arnaldar í nokkuð mörg ár, kannski síðan hann sendi frá sér Röddina. Harðskafi er lágstemmd og yfirveguð, vel plottuð og rennur bara ágætlega.
**1/2