Infidel eftir Ayaan Hirsi Ali

illus01-183.jpgÞað er ekki ofsögum sagt að lífshlaup Ayaan Hirsi Ali sé magnað. Í bókinni Infidel lýsir hún mögnuðu lífshlaupi sínu, flakki með fjölskyldu sinni frá einu landinu til annars (Sómalía, Kenýa, Saudi-Arabía o.fl.), hryllilegri meðferð sem hún þarf að sæta af sínum nánustu (eitt sinn var móðir hennar nærri búin að drepa hana eftir einar barsmíðarnar) og upplifun sinni af veröld strangtrúaðra í hennar næsta umhverfi.

Hún skýrir síðan frá því hvernig þessi heimur Islam, sem hún gekkst fyllilega undir alla tíð, smám saman hrynur innra með henni þegar að hún fær hæli sem flóttamaður í Hollandi og kynnist með árunum lífinu og siðunum þar. Hún tekur að lokum þá afstöðu að lífið sé betra í Vestrinu og að menningin þar sé einfaldlega á hærra plani. Út frá því flækist hún svo inn í pólitík með þann boðskap helstan á vörum að Islam þýði afturhald og að Vesturlönd eigi að berjast gegn þeim siðum sem þeirri trú fylgja, s.s. kúgun á konum, ofbeldi, trúarofstæki o.s.frv.

Einhvern veginn er ekki annað hægt en að sýna þessum viðhorfum talsverðan skilning þegar að bakgrunnur Hirsi Ali er hafður í huga. Því verður til að mynda ekki neitað að líf hennar tekur vissanlega stakkaskiptum frá því að vera hreint helvíti áður en hún kemur ,,vestur” og til þess að einkennast af frelsi og umburðarlyndi. Hins vegar verður þessi reynsla hennar e.t.v. að sumu leyti til þess að hún freistast til þess að alhæfa - alhæfa um milljarð manna sem er dreifður um allar heimsins grundir, er hluti af alls kyns gjörólíkum menningarstraumum og þar sem hver manneskja er þar að auki einstakt tilvik. Hún getur vissulega haft nokkuð að segja um sinn bakgrunn en hversu miklar forsendur hefur hún til dæmis til þess að fella dóma um samfélög fyrrum trúsystkina sinna í Suðaustur-Asíu, Bosníu, Kína eða annars staðar þar sem að stór samfélög Múslima eru til en trúin er stunduð á allt annan hátt en í Sómalíu eða Saudi-Arabíu?

Þar með er ekki sagt að lítið eigi að gera úr baráttumálum Hirsi Ali. Það gagnast engum að loka augunum fyrir því að kvennabarátta er komin mun skemur á veg í þeim heimshluta þar sem hún á uppruna sinn, trúin ræður vissulega allt of miklu og er sannarlega skelfilegt kúgandi afl, til dæmis í hennar heimalandi Sómalíu. Það er hins vegar vafasöm leið að beita dæmum þaðan til þess að alhæfa hluti um rúman milljarð mann og kenna trúnni um eitthvað sem fremur er bundið í slæma arfleið og valdamisnotkun þar sem trúin er notuð sem skálkaskjól.

Að öllu þessu sögðu þá verður ekki fram hjá því horft að sjálfsævisaga Ayaan Hirsi Ali er mögnuð saga hugaðrar konu.

Skildu eftir svar