Hur man botar en fanatiker eftir Amos Oz

Um daginn var ég að hlusta á uppáhaldsútvarpsþáttinn minn, Konflikt í sænska ríkisútvarpinu. Umfjöllunarefnið var Ísrael, svo sem út frá þessum vanalega vinkli, þ.e. um átökin öll og hvort eða hvenær þeim linni nokkurn tíma. En þá barst í tal að sjálfsagt væri ekki að finna nokkurs staðar rithöfunasamfélag sem væri jafn pólitískt aktíft (og þá aðallega í friðarhreyfingunni) og í Ísrael.

Þetta rifjaðist upp þegar að ég lauk loks lestri ritgerðakversins Hur man botar en fanatiker þar sem safnað er saman völdum greinum eftir ísraelska rithöfundinn og friðaraktívistann Amos Oz. Umfjöllunarefnið er auðvitað oftar en ekki deilan eilífa við Palestínumenn og sú dílemma sem menn eins og Oz standa frammi fyrir þar sem menn á báðum bógum telja hann svíkja sinn málstað og ekki ganga nógu langt í vörn fyrir þá. Ísraelunum finnst hann halda með Palestínumönnum og svo öfugt. Sérstaklega fannst mér síðasta ritgerð bókarinnar fín áminning um gildi og gæði málamiðlunarinnar. Það eru orð í tíma töluð.

Ég rak mig auðvitað sjálfur á það sem Oz nefnir um það að honum takist aldrei að geðjast öllum. Mér fannst hann nefnilega stundum afsaka og verja málstað Ísraela fullmikið. En það er nú bara þannig.

En allt í allt ágætis lesning og áhugaverð innsýn inn í hugarheim ísraelsku intellígensíunnar og friðarhreyfingarinnar.

**

Skildu eftir svar