Entries from ágúst 2008

18 ágúst 2008

Män som hatar kvinnor eftir Stieg Larsson

Ekki skil ég nú alveg hæpið í kringum og metsöluna alla á bókinni Män som hatar kvinnor hér í Danmörku og í Svíþjóð (og kannski víðar). Þetta er svo sem ekkert verra en það sem gengur og gerist í svona týpískum skandinavískum glæpasögum en heldur ekkert betra. Bara rétt svona lala. Byrjar ágætlega en svo [...]

10 ágúst 2008

Bröderna Karamazov eftir Fjodor Dostojevskíj

Þá er lokið um það bil hálfs árs þrautagöngu við 48 klukkustunda langan sænska upplestur Karamasov-bræðranna.
Reyndi mjög á þolrifin enda er bókin oft alveg hreint svakalega langdregin og hengir sig í smáatriði og aukaatriði. Ég hef það prinsipp að leggja mig aldrei eftir ,,abridged” útgáfum en þarna hefði ég stundum verið til í að skipta [...]

4 ágúst 2008

Velkominn til Bagdad

Aðdáendur svokallaðra reportage-bókmennta hafa ekki haft um auðugan garð að gresja í íslensku bókaúrvali, hvað þá þeir sem áhuga hafa á frásögnum af atburðum líðandi stundar úti í hinum stóra heimi. Þess vegna er fagnaðarefni í hvert af þeim fáu skiptum sem eitthvað í þá áttina kemur út eftir íslenskan höfund. Ein slík bóka kom [...]