Entries from janúar 2009

17 janúar 2009

Myrká eftir Arnald Indriðason

Ein af slappari bókum Arnaldar. Plottið er götótt og flétturnar fremur litlar og einfaldar. Framvindan er um margt ósannfærandi og á köflum hreinlega billeg (best væri að geta tekið dæmi um það úr bókinni en maður má ekki skemma afhjúpanirnar fyrir þeim sem ekki hafa lesið. Nefni þó aðallega þetta með þefskynið sem lykilþátt). Til [...]

13 janúar 2009

Útkall: Geysir er horfinn eftir Óttar Sveinsson

Það að hlusta á þessa frásögn í íslenska desembermyrkrinu var ekkert minna en magnað. Frásögnin af brotlendingu Geysis á Vatnajökli 1950 og örvæntingu áhafnarinnar um borð sem öll komst af, var þó talin af eftir nokkurra daga leit en náði síðan að gera vart við sig og við tók hamslaus gleði heillar þjóðar. Ekki svo [...]

13 janúar 2009

Skuggamyndir – úr ferðalagi eftir Óskar Árna Óskarsson

Ósköp falleg og snotur ferða- og fjölskyldusaga. Minnir mann rækilega á það hversu smekklaust það er að halda því fram að núverandi fjármálakrísa sé versta ástand í áratugi eða aldir á Íslandi. Fátæktin, örbyrgðin og allsleysið sem bókin varpar upp – og lýsir bara nokkrum áratugum aftur í tímanna – er svo sláandi að hún [...]

13 janúar 2009

Saga af forseta eftir Guðjón Friðriksson

Guðjón Friðriksson hefur notið vinsældar og virðingar hjá bókelskum Íslendingum um árabil, fyrst og fremst vegna lifandi frásagna hans af völdum stórmennum genginna tíma. Margir eru mér sjálfsagt sammála um það að ákveðnum hápunkti hafi hann náð með þriggja binda verki sínu um Einar Benediktsson, geysilega góðu og skemmtilegu verki. Styrkur Guðjóns hefur fyrst og [...]

12 janúar 2009

The Other eftir Ryszard Kapuscinski

Algjörlega óþörf post-mortem viðbót við ritsafn meistara Kapuscinski. Lítið kver upp á sirka 80 síður sem inniheldur það sem helst líkist uppskrift af nokkrum fyrirlestrum sem Kapuscinski hélt hér og þar um efnið ,,The Other” eða ,,Hinn” (eða hvernig sem offisíal íslenska útgáfan hljómar af því hugtaki).