13 janúar 2009...9:20 pm

Útkall: Geysir er horfinn eftir Óttar Sveinsson

Jump to Comments

utkall_geysir_er_horfinnÞað að hlusta á þessa frásögn í íslenska desembermyrkrinu var ekkert minna en magnað. Frásögnin af brotlendingu Geysis á Vatnajökli 1950 og örvæntingu áhafnarinnar um borð sem öll komst af, var þó talin af eftir nokkurra daga leit en náði síðan að gera vart við sig og við tók hamslaus gleði heillar þjóðar. Ekki svo oft sem maður herpist saman við voðaleg örlög og fær síðan gæsahúð þegar að úr leysist þegar að maður les eða hlustar á bækur. En það gerist í þessu tilviki.

Algjörlega ótrúleg saga. Hollívúdd bliknar í samanburði.

***

3 Ummæli


Skildu eftir svar