17 janúar 2009...11:58 pm

Myrká eftir Arnald Indriðason

Jump to Comments

myrk_jpg_340x600_q95Ein af slappari bókum Arnaldar. Plottið er götótt og flétturnar fremur litlar og einfaldar. Framvindan er um margt ósannfærandi og á köflum hreinlega billeg (best væri að geta tekið dæmi um það úr bókinni en maður má ekki skemma afhjúpanirnar fyrir þeim sem ekki hafa lesið. Nefni þó aðallega þetta með þefskynið sem lykilþátt). Til að bæta gráu ofan á svart er þetta alveg skelfilega langdregið og tíðindalaust eitthvað. Kannski á það einhvern þátt í þessu að hún Elínborg, sem er aðalpersóna þessarar bókar, er ekki beinlínis litríkasti karakter í persónuflóru Arnaldar.

Ekki mikið meira um þetta að segja. Arnaldur getur mun betur.

*

2 Ummæli

  • Ég er gersamlega sammála þér um þessa lítilsverðu bók. Alveg steinhissa á Arnhaldi að láta þetta frá sér. Eftir niðurskurð, fínpússun, meiri húmor og meiri samfellu, gæti orðið úr þessu eitthvað sem þess virði væri að lesa, – hugsanlega.

  • Ég er alveg sammála þér. Ég saknaði Erlends mikið í þessari bók og fannst mataruppskriftirnar hennar Elínborgar afar óspennandi. Kannski er maður farinn að ætlast til of mikils af Arnaldi, en miðað við fyrri bækur hans skorar þessi ekki mjög hátt.


Skildu eftir svar