22 mars 2009...11:39 pm

Kronprinsessan eftir Hönnu-Vibeke Holst

Jump to Comments

kronpÉg skal bara játa það hér með að ég hafði fordóma fyrir þessari bók þegar að hlustun (á sænska þýðingu hennar) hófst. Veit ekki hvort það var einhver ömurleg karlremba (vona ekki) eða sá misskilningur minn að þessi þríleikur höfundar sverði sig í anda glæpasagna, en þeirrar tilhneigingar hefur gætt á undanförnum árum að mega helst ekki hafa þá skoðun að glæpabókmenntir séu fremur ómerk bókmenntagrein í samanburði við margar aðrar. Kannski líka tortryggni gagnvart metsölubókum.

Hvað sem þessu öllu líður, þá yfirvann Krónprinsessa danska metsöluhöfundarins Hönnu-Vibeke Holst allar þessar fyrirframhindranir mínar og það, út af fyrir sig, er bara nokkuð vel af sér vikið.

Krónprinsessan er vissulega ekkert bókmenntalegt stórvirki út frá einhverju listrænu gildi. Hins vegar er um að ræða mjög flottan lykilróman sem lýsir fantavel nútímasamfélagi okkar, bæði hér á Norðurlöndum og víðar. Hönnu-Vibeke Holst tekst að fanga mjög vel þá stöðu sem konur standa frammi fyrir sem bæði stefna á frama en verða jafnframt óþyrmilega varar við hvernig hefðirnar halda í við þær. Bókin varpar ljósi á það hvernig jafnréttið verður að byrja á heimilinu, annars er það alltaf vængstýft og skilar sér aldrei í neinni þróun fram á við. Allir þeir sem ætíð bulla um það að jafnrétti kynjanna sé löngu komið á, og þvaðra jafnvel um að konur séu komnar lengra en karlarnir í nútímanum, ættu að lesa þessa bók. Hún sýnir hvað það er langt í land og hvað staðan er enn þá 14-2 fyrir karlana (svo maður noti nú karlpungalegt líkingamál).

Hráskinnaleik pólitíkurinnar er einnig vel lýst. Bókin vísar beint til atburðarásar og tíðaranda í dönskum stjórnmálum á sögutíma hennar, í kringum síðustu aldamót. Hún sýnir þeim fram á hversu þröngt þeir horfa sem halda það að íslenskir stjórnmálaflokkar skeri sig úr fyrir valdabrölt, bollaleggingar í reykfylltum bakherbergjum og hannaða atburðarás út í eitt. Svona er þetta auðvitað miklu víðar og í raun sjálfsagt alls staðar þar sem flokkakerfi mynda grundvöll stjórnmálalífsins (líkt og gengur nú og gerist í flestum raunverulegum lýðræðisríkjum dagsins í dag).

Ég ætla að halda áfram með þennan þríleik. Hanna-Vibeke Holst er þarna að skrifa feykiflottan lykilróman og mjög skarpa og gagnrýna samfélagsgreiningu. Góð heimild um samtímann.

Sem sagt, eins og áður sagði; vel af sér vikið.

Ný einkunnagjöf (frá 0-10, eins og í íslenska skólakerfinu):

8,8

2 Ummæli

  • Ég var næstum búin að skrifa um þessa á bókvitinu. Var ekki alveg eins hrifin af henni og þú, hefði farið nær sjöunni. Er hins vegar nokkuð imponeruð af þeirri greiningu að bókin sýni fram á að jafnrétti þarf að byrja á heimilinu. Það er auðvitað alveg rétt og flott hvernig frú Holst sýnir það.
    Æsa

  • Nei, ég hef líka eiginlega bakkað örlítið með þessa einkunn mína í huganum.

    Þannig að endurupptökunefnd gefur svona sirka rúmlega átta.


Skildu eftir svar