27 maí 2009...11:21 pm

Opmålingen af verden eftir Daniel Kehlmann

Jump to Comments

Fáfróður áhugamaður um heim bókmennta- og útgáfufræða verður að játa að stundum áttar hann sig ekki alveg á því af hverju í ósköpunum sumar bækur fara sigurför um heiminn. Til dæmis Mæling heimsins eftir Daniel Kehlmann. Hana hef ég hlýtt á undanfarið í dönskum lestri.

 

Mæling heimsins hverfist um tvo sögufræga þýska vísindamenn á tímabilinu í kringum aldamótin 1800, þá Carl Friedrich Gauss og Alexander von Humboldt. Einhver kynni að spyrja: ,,Hvernig er hægt að segja spennandi og skemmtilega sögu af þessum mönnum tveim svo að höfði til lesenda víða um heim í upphafi 21. aldarinnar?”

 

Því verða eiginlega aðrir að svara en ég. Mér leiddist sagan nefnilega. Þetta er ágætlega gert og ekki skal ég efast um glæsileika allra þeirra stílbragða sem Kehlmann á að hafa notað til að minna á söguefni sitt og við að ná fram ákveðnum blæbrigðum.

 

En þetta er bara ekki nógu skemmtilegt eða gott. Eiginlega bara jafn þurrt og óspennandi og það hljómar í raun áður en maður heldur að eitthvað muni koma manni svo skemmtilega á óvart. Ekki síst í ljósi allrar metsölunnar hér og þar.

 

Og aftur spyr ég mig þeirrar spurningar, af hverju í ósköpunum varð þessi bók metsölubók? Finnst svona mörgum þessi bók virkilega svona ofsalega skemmtileg? Hvað í veröldinni varð til þess að þessi bók spurðist svona rosalega vel út meðal lestrarhesta?

 

Einkunn: 6

Skildu eftir svar