Entries from ágúst 2009

2 ágúst 2009

On Chesil Beach eftir Ian McEwan

Hin svokallaða ‘68-kynslóð hefur stundum fengið að heyra það undanfarin ár, til dæmis frá rithöfundum seinni kynslóða. Þetta hafi verið duglaust pakk sem ekkert skildi eftir sig og urðu svo að nákvæmlega sömu gasgrilla-plebbunum og kynslóðirnar bæði á undan og eftir. Eða einhvern veginn þannig hljómar pirringurinn.
Ekki er þetta nú alveg sanngjarn dómur. Lestur á [...]

2 ágúst 2009

Útkall: Flóttinn frá Heimaey eftir Óttar Sveinsson

Stundum er sagt á Íslandi að þar gerist fjárakornið aldrei neitt. Það afsannast algjörlega þegar að lesnar eru Útkallsbækur Óttars Sveinssonar sem nú hafa komið út um árabil, yfirleitt ein á ári, og eru farnar að skipta tugum. Í myrkasta skammdegi síðasta vetrar var ég mörg síðkvöld í röð frá mér numinn af spenningi og [...]

2 ágúst 2009

Dronningeofret eftir Hönnu-Vibeke Holst

Það að ég sé nú búinn með allan þríleik Hönnu-Vibeke Holst um danska samtímapólitík á mettíma hlýtur að þýða það að bækurnar hennar halda vel. Það gera þær líka, jafnvel þó að í síðasta hluta þríleiksins, Dronningeofret (2008), sé lopinn farinn að teygjast ansi mikið.
Áfram er það þannig í lokabók þríleiksins að þetta nær ekki [...]

2 ágúst 2009

Halldór Laxness: ævisaga eftir Halldór Guðmundsson

Það má skrifa á óbærilegan áhuga á Laxness á menntaskólaárum að ég taldi mig nokkuð vel heima í ævi Halldórs Laxness áður en ég tók nú í vor loks múrstein úr bókahillunni sem þar hafði beðið mín þolinmóð í fimm ár tæp. Að vissu leyti sannaði það sig að maður kunni að stikla yfir ævina [...]