Entries from september 2009

10 september 2009

Útkall á jólanótt eftir Óttar Sveinsson

Ég er hálfpartinn að breytast í Erlend hans Arnaldar Indriðasonar með allan sinn bókmennasmekk fyrir hrakningasögum. Nýlega hlýddi ég á þriðju Útkallsbók mína á þessu ári. Dramatískt er þetta og því fyrirtaks afþreying.
Nú var það sjóslysið þegar að Suðurlandið sökk á jólanótt 1986. Þessi bók er enn ein ótrúleg lýsingin á fólki sem bjargast á [...]

10 september 2009

Íslenska þjóðríkið eftir Guðmund Hálfdanarson

Afar merkileg stúdía Guðmundar sem afbyggir margar þjóðerniskreddur undanfarinna áratuga og stundum alda. Íslenskt þjóðerni, íslensk þjóðerniskennd, sjálfsmynd Íslendinga og margt annað þvíumlíkt er stúdía sem fylla þarf margar bækur til viðbótar af. Svona stúdíur eru þarfar þjóðfélagi sem er of gjarnt á snögga hugsunarlausa afgreiðslu hlutanna í stað djúprar greiningar. (Þar með er þessi [...]

10 september 2009

Kim Novak badade aldrig i Genesarets sjö eftir Håkan Nesser

Það gerist ekki svo ýkja ofta að á vegi manns verði glæpasögur sem eru það góðar að þær jafnast á við vel skrifaðar skáldsögur. Sama á við um samanburð á höfundum slíkra bóka. Ef glæpasögur eru það góðar að þær jafnast á við góðar ,,venjulegar” skáldsögur þá er tilhneiging hjá manni að hækka þær um [...]

10 september 2009

Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson

Ríkisútvarpið býður hlustendum sínum að hlaða niður lestri Gunnars Gunnarssonar á einu þekktasta verki sínu, Svartfugli. Gunnar er góður upplesari og það er eitthvað notalegt við það þegar að hann býður góðrar nætur í lok hvers lestrar og byrjar svo þann næsta á smá upprifjun.
Sagan sjálf er hins vegar eilítil vonbrigði. Alla vega var ég [...]