Ríkisútvarpið býður hlustendum sínum að hlaða niður lestri Gunnars Gunnarssonar á einu þekktasta verki sínu, Svartfugli. Gunnar er góður upplesari og það er eitthvað notalegt við það þegar að hann býður góðrar nætur í lok hvers lestrar og byrjar svo þann næsta á smá upprifjun.
Sagan sjálf er hins vegar eilítil vonbrigði. Alla vega var ég að vonast eftir að þetta hefði elst betur. Oft er þetta ansi stirt og um sumt langdregið, eins og til dæmis heildarlýsingarnar á vitnaleiðslunum. En margt er samt gott og vonandi fáum við hlustendur fleiri svona dýrgripi úr safni Ríkisútvarpsins inn á hlaðvarpið.