Freedom eftir Jonathan Franzen

Ætli Freedom sé ekki einhver umtalaðasta skáldsaga síðustu missera á heimsvísu? Nógu mikið hefur maður alla vega heyrt um að þetta sé ein af þessum ,,Great American Novels”, hvað Franzen komst einn fárra rithöfunda á forsíðu TIME út af henni og að Obama hafi tekið hana með sér í sumarfríið sitt áður en hún kom út á almennan markað. Heilu bókmenntaþættirnir hafa helgað dagskrá sína bókinni og mikil greining hefur átt sér stað á efni hennar. Franzen á að vera nýi Steinbeck eða Faulkner og ég veit ekki hvað og hvað.

Þess vegna verður maður auðvitað forvitinn og þess vegna varð hún fyrir valinu þegar mig vantaði lesefni í Zagreb í sumar og labbaði inn í afar fína bókabúð með fullt af bókmenntum á ensku (ég er nefnilega svo voðalega slakur í króatísku).

Ég hóf strax maraþonlestur og var búinn með á annað hundrað síður á fyrsta degi. Svo lenti hún úti í horni um skeið en síðan hef ég gripið til hennar af og til og að lokum hespað henni af sem náttborðsbók undanfarinn mánuðinn eða svo.

Stundum hefur þetta nú reynt ansi mikið á þolinmæðina og verið dálítill snjómokstur að komast í gegnum þetta. Ég er nefnilega ekki einn af þeim sem finnst þetta vera einhver instant klassík sem á að fá sex stjörnur af fimm mögulegum. Þetta er vissulega afar góð skáldsaga og ég skil vel að hún sé fyrirferðarmikil í bókmenntaumræðunni og að hennar verði e.t.v. minnst í framtíðinni sem einhvers konar táknmynd fyrir þá tíma sem við lifum ákkúrat nú. Í anda epísks verks (þó ég viti ekki hvort þetta flokkist beinlínis undir epík) þá kemur hún inn á mjög margt knýjandi í okkar samtíma, fyrst og fremst það að vilja lifa í anda hugsjóna en reka sig á hversu erfitt það getur reynst í daglegu lífi, líkt og togstreitan á milli þess að vera neytandi og vilja lifa umhverfisvænu lífi sýnir.

Karakterarnir eru líka um margt magnaðir, allir alveg gjörsamlega óþolandi – maður eiginlega hatar þá alla með tölu. Stjarnfræðilega leiðinlegt og óheillandi fólk. Franzen tekst þó að gera flesta þeirra fremur margbrotna og forðast þannig að búa til steríótýpur, það má reyndar segja að einn af kjörnum bókarinnar séu þessar innri mótsagnir sem búa með hverjum og einum.

Baráttan milli hugsjónanna og praktíska veruleikans sem manni líkar ekki alltaf svo vel við er líka vel sýnd í þessari bók og hún klímaxar vel í blálokin, með víggerða rammanum úti í náttúrunni, þar sem frelsið er orðið að fangelsi og fangelsið að frelsi.

Gallinn við þessa bók er að maður skynjar of mikið hvað höfundurinn er stundum líkur karakterunum sínum, dálítið mikið húmorslaus gaur með fullkomnunaráráttu sem er aðeins of meðvitaður um að bókin hans eigi að verða Great American Novel. Freedom er aðeins of mikið eins og Walter, aðalpersónan.

Það er líka margt í þessari bók sem er alls ekkert svo Great. Til dæmis var ég oft að því kominn á fyrstu 200 blaðsíðunum að henda bókinni frá mér þar sem þær blaðsíður fara í skrif Pattyar, einnar aðalpersónunnar, en þar finnst mér Franzen dulbúa sig mjög illa sem Patty og vera of mikið hann sjálfur. Hins vegar koma afar góðir sprettir inn á milli alla bókina en maður kemst ekki hjá því að spyrja sig hvort að Franzen hefði ekki átt að vera aðeins minna upptekinn af því að skrifa tímalausa klassík, hann er stundum einhvern veginn aðeins of upptekinn við að koma öllu að.

En þetta er samt fín bók þó að mig gruni að hún skipti fólki dálítið í tvo hópa, annað hvort elskarðu hana eða hatar. Ég er nú svona nær því að elska hana sjálfur en inn á milli langaði mig líka að rífa hana í tætlur og henda fram af svölunum. Ég er ekki viss um að ég nenni Jonathan Franzen aftur. Paul Auster er áfram minn maður í amerískum bókmenntum, miklu betri og skemmtilegri.

Rita ummæli

Filed under erlendar bókmenntir, skáldskapur

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s