Ég hlustaði á bókmenntaþátt um daginn þar sem var verið að fagna 60 ára afmæli þessarar klassísku bókar sem ég átti alltaf eftir að lesa. Nú er ég búinn að bæta úr því.
Þetta er bók sem stendur fyllilega undir nafninu klassík. Frábær og tímalaus snilld um vanda þess að vera unglingur, vel skrifuð og frábærleg skemmtileg. Ekkert meira um það að segja, svo sem.
Þetta er ein af klassíkunum sem náði engan veginn til mín. Veit ekki hvað það var, Holden pirraði mig bara alveg svakalega.
Ég hef aftur á móti oftast verið mjög hrifinn af öðrum “klassíkum” eins og Moby Dick, Bleak House, Heart of Darkness og svo framvegins.
Já, þetta er misjafnt. Þetta alla vega náði mér í þetta skiptið.